Skip to Content

Viðburðadagatal

Atburðir og dagskrá

Fyrir félög, samtök, fyrirtæki og einstakling er viðburðadagatal, eða atburðadagatal, þægileg leið til að kynna hvað er í gangi og til að halda tengslanetinu við efnið. Öflug leið til að fá alla til að koma inn á heimasíðuna aftur og aftur. Hjá félögum er hægt að tilkynna fundi, fyrirlestra, uppákomur og ferðir svo dæmi séu nefnd. Hjá fyrirtækjum er viðburðadagatalið einföld leið til að kynna nýja hluti eða senda almenn skilaboð til starfsmanna. Með þessum hætti geta félagsmenn og viðskiptavinir ávalt fengið yfirlit yfir það sem er framundan hverju sinni með fljótlegum hætti. Hjá verslunum er t.d. hægt að kynna væntanleg tilboð eða dagssetningu á útsölu. Hjá einstaklingum eins og listamönnum næstu tónleika eða næstu sýningu. Viðburðadagatalið er einfalt og þægilegt í notkun.

Viðburðadagatalið heldur utanum þátttöku

Viðburðadagatalið frá Drupal er án efa einn skemmtilegasti möguleikinn sem hægt er að setja upp. Í kerfinu er hægt að fá yfirlit yfir atburði með því að bregða upp lista yfir atburði, fá yfirlit yfir dag, viku og mánuð. Þá er hægt að hafa atburðadagatalið fast á forsíðu í litlu formi og síðan að skoða það í fullri stærð. Einnig er hægt að hafa valkost þar sem meðlimir melda sig í atburð, eins og ferð eða fund. Þannig getur vefstjóri fengið yfirlit yfir þá sem ætla að koma á fundinn eða þá sem skrá sig í ferð.

Söguskráning

Einn ávinningur atburðadagatalsins er að allar færslur geymast um ókominn tíma. Þannig virkar atburðadagatalið eins og sjálfvirk söguskráning yfir langan tíma. Seinna er hægt að fletta upp í dagatalinu til að rifja upp atburði, hvenær þeir voru, hvað var gert og hvert var farið?

Einföld vefumsjón í Drupal

Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað hversu einfalt er fyrir vefstjórann aða halda utanum atburðina í vefumsjónarkerfinu frá Drupal. Skoðaðu atburðadagatalið hér á prufusíðunni okkar fyrir Drupal.