Skip to Content

Bloggkerfi

Bloggkerfi

Með Booggi getur þú slegið tvær flugur í einu höggi. Komið á framfæri upplýsingum um vöru eða þjónustu og einnig eflt stöðu þína á netinu gagnvart leitarvélum. Allt blogg, eins og bloggið á prufu- og kynningarvefnum okkar, eykur áhuga leitarvéla á vefsíðunni þinni. Blogg er til margra hluta gagnlegt og skemmtilegt og þarf ekki endilega að vera nöldurblogg. Blogg getur verið uppbyggjandi upplýsingamiðil fyrir starfsemi og vöruúrval. Blogg getur líka verið skemmtilegt ef höfundurinn er frjór og hugmyndaríkur.

Blogg fyrir markaðssókn

Emstrur nota núna Drupal „Open Source“ vefumsjónarkerfið til að setja upp vefsíður. Með Drupal kemur gott bloggkerfi sem gefur notandanum margvíslega möguleika í uppsetningu og stjórnun bloggsins. T.d. getur stjórnandi bloggsins ráðið hvort og hver fær að koma með athugasemdir. Einnig getur vefstjórinn ákveðið að fara yfir athugasemdir annarra áður en hann hleypir athugasemdunum út á síðuna sína.

Nýr samskiptamáti

Bloggið þarf að tengjast þessum nýja samskiptamáta og hafa burði til að byggja sig inn á facebook og twitter og aðra fjölsótta vefi. Bloggið er tæki til að draga athygli að þér og þínu fyrirtæki sem vörumerki. Draga athygli að fyrirtækinu.

Drupal og TypPad.

Hjá Emstrum bjóðum við bæði Drupal blogg og uppsetnigu á bloggi frá TypePad sem er eitt öflugasta bloggkerfið í dag. Ef þú vilt vera meira en sýnilegur og koma þér framar þá þarftu að blogga. Hafa samskipti á netinu.