Form til að fylla út
Í Drupal er auðvelt fyrir þig að setja upp margs konar rafræn form sem gestir vefsíðunnar fylla út sjálfir. Sem dæmi má nefna atvinnuumsókn, form fyrir félagsaðild, skoðanakannanir, getraunir og form fyrir þá sem vilja sækja um sumarhús hjá stéttarfélagi svo að dæmi séu nefnd. Þegar gesturinn fyllir út formið og sendir það með því að ýta á SENDA, færð þú sem viðtakandi og hann sjálfur tölvupóst með öllum upplýsingum úr forminu. Rafræn form af þessu tagi spara mikinn tíma þar sem úrvinnsla gagna er bæði handhæg og einföld.
Niðurstöður í lista
Niðurstöður rafrænna forma í Drupal skila sér til vefstjóra ásamt öllum þeim upplýsingum sem settar eru inn í formið í tölvupósti frá hverjum og einum þátttakanda. Þú sem vefstjóri getur síðan sótt allar upplýsingarnar og öll svörin af margs konar formi sem hentar þér eins og t.d. sem lista í Excel skjali. Skjali sem auðvelt er að vinna úr og flokka upplýsingarnar. Með þessum hætti er listinn, sem verður til á vefnum, orðinn hluti af upplýsingakerfi fyrirtækisins eða félagsins.
Rafræn form afla upplýsinga
Eftir að Emstrur setja upp Drupal vefinn með ókeypis vefumsjónarkerfi getur þú sem vefstjóri eða aðrir sem fá til þess heimild, séð um að setja inn ný form þegar á þarf að halda. Einnig er hægt að setja inn einfalt stærðfræðipróf, CAPTCHA, til að greina milli manna og sjálfvirkra netvéla til að koma í veg fyrir SPAM. Þú býrð líka til tengil á áberandi stað þannig að gestirnir rati með auðveldum hætti á formið. T.d. ef greiða þarf atkvæði um tiltekið atriði í kjarasamningum. Þá er hægt að skilyrða með einföldum hætti að aðeins ein tölva, ein IP tala, geti greitt atkvæði. Drupal er þannig meira en vefumsjónarkerfi heldur má segja að það sé vefþróunartæki fyrir þá sem nýta það til hins ýtrasta.
Líftími rafrænna forma
Í grunninn eru form sérlega þægileg leið til að safna margs konar upplýsingum sem fyrirtækið þitt eða félagið sem þú ert í forsvari fyrir þarf á að halda. T.d. er auðvelt að setja upp form sem ganga á vefsíðunni í langan tíma eða staldra stutt við á síðunni þinni. Þegar hlutverki þeirra er lokið eru þau tekin út.

























































