Fréttabréf
Þú skrifar og sendir fréttabréf
Á tímum sparnaðar og hagkvæmni er mikilvægt að finna árangursríkar og ódýrar leiðir til að ná árangri í viðskiptum. Eitt af mörgum tækjum vefsíðunnar sem þú getur nýtt þér til að ná árangri í markaðssetningu með hagkvæmum hætti eru fréttabréf. Með því að safna viðskiptavinum þínum á póstlista sem þú tengir við fréttabréfið getur þú sent þeim mikilvæg skilaboð á mikilvægum augnablikum. Með fréttabréfinu frá Emstrum og Drupal sem er innbyggt í vefsíðuna þína verður þetta auðveldara en að senda tölvupóst eða skrifa bréf í Word.
Fréttabréf og tilkynningar
Stundum getur verið nauðsynlegt að senda viðskiptavinum tilkynningu með stuttum fyrirvara. T.d. ef þú ákveður útsölu, afslátt eða sérstök tilboð. Þá er hægt að nota sama fréttabréfið og póstlistann til að senda stutta tilkynningu. Þú getur síðan haft sérstakt útlit á fréttabréfinu með mynd þegar þú kynnir nýja vöru. Vertu í sambandi við viðskiptavininn og minntu á þig með því að nota stjórntæki vefsíðunnar viðskiptum þínum til framdráttar. Vertu hugmyndaríkur á tímum sparnaðar og hagkvæmni.
Skrifaðu núna og sendu seinna
Oft tekur tíma að setja upp fréttabréf og ákveða efni sem á að far í fréttabréf eða tilkynningu sem ætluð er viðskiptavinum. Einnig getur verið æskilegt að búa til nokkur fréttabréf á sama tíma með sama þema sem þó fara út á mismunandi tíma. Hér koma Emstrur og Drupal til móts við þínar þarfir þar sem hægt er að setja upp mörg fréttabréf og ákveða sendingardag fram í tímann.
Búðu til mismunandi hópa
Stundum viltu senda sumum eða útvöldum viðskiptavinum sérstakar tilkynningar. T.d. góðum viðskiptavinum upplýsingar um aukaafslátt rétt áður en útsala hefst. Þá er auðvelt að búa til sérstakan hóp sem þú notar síðan til að senda sérstakt fréttabréf eða sérstaka tilkynningu. Vertu í samskiptum við viðskiptavinina.