Gestabók

Submitted by saltstjori on M , 02/03/2010 - 21:38

Gestir gera vart við sig

Skemmtileg tilbreyting fyrir persónulega heimsíðu og vefsíður fyrir félagssamtök eru gestabækur. Þar geta þeir sem kíkja inn á síðuna gert vart við sig með því að skrifa í gestabókina og skilið eftir skilaboð, athugasemdir og jafnvel myndir. Innskráðir gestir geta þannig á einfaldan hátt látið vita af sér og búið til skrá yfir heimsóknir. Gestabókin er áhugaverð leið fyrir þá einstaklinga og félagssamtök sem vilja gera vefsíðuna að þungamiðju í uppbyggingu á tengslaneti. Góð leið fyrir „social network“.

Gestabók sem yfirlit

Ef gestir nota gestabókina er hún skemmtilegt yfirlit yfir heimsóknir og skemmtileg leið til að fá stutt viðbrögð frá þeim. Jafnvel er hægt að heimila öðrum gestum að gera athugsemdir með sama hætti og gert er á bloggi og spjallþráðum. Gestabókin er að mörgu leyti skyld spjallþráðum og bloggi að uppbyggingu en er að öllu leyti mun einfaldari enda markmiðið með henni að sama skapi einfaldara. T.d getur gestur með skráningu líka eytt færslu og athugasemdum ef hann t.d. skráir eitthvað sem hann sér eftir seinna.

Tvenns kona gestabækur

Í Drupal er hægt að setja upp tvenns konar gestabók. Annars vegar gestabók sem er fyrir vefinn þinn þar sem allir geta skilið eftir athugasemdir. Þetta getur verið skemmtileg leið til að fá viðbrögð frá þeim sem koma við í eitt og eitt skipti og vilja tjá sig án þess að skrifa langt bolgg. Þá er hægt að setja upp gestabók fyrir notendur og fasta gesti. Þeir geta þannig haft sitt litla svæði á þinni síðu.