Póstlistar

Submitted by saltstjori on M , 02/03/2010 - 21:35

Póstlistar til viðskiptavina

Eitt öflugasta tæki netsins fyrir viðskipti og verslanir eru póstlistar. Að sumu leyti njóta póstlistar og póstsendingar eins og stuttar tilkynningar og fréttabréf ekki sannmælis þar sem misnotkun (spam) í netheimum hefur verið yfirþyrmandi á köflum. Póstlistakerfið sem Emstrur setja upp í hefur hins vegar marga kosti og áhugaverðan sveigjanleika. Það er notendavænt bæði með tilliti til notenda og þeirra sem fá póstsendingar gegnum kerfið.

Notandinn er samþykkur

Það sem er þægilegt við póstlista/fréttabréfakerfið frá Emstrum og Drupal er að póstlistinn byggir á samþykki þeirra sem fá póstinn. Til að byrja með verða þeir sem eru á listanum að að samþykkja að vera með. Þeir gerast áskrifendur. Eftir það er leið póstlistans inn á þeirra heimilisfang á netinu greiðfær. Þangað er hægt að senda fréttabréf og aðrar upplýsingar eins og tilboð og útsölur án fyrirstöðu.

Notandinn getur hætt

Leiðist viðtakandanum pósturinn eða missir áhugann á því sem þú eða eigandi póstlistans er auðvelt fyrir hann að skrá sig af listanum. Hann getur hætt hvenær sem er. Valdið er hjá honum en ekki þér og þess vegna þarft þú að vera með skemmtileg og áhugaverð fréttabréf til að hann vilji vera áfram. Þetta er eðlilegur samskiptamáti á netinu í dag og gerir póstlistann mun verðmætari fyrir þig fyrir vikið.