Skoðanakannanir
Kannaðu hugi fólks
Ein leið til að gera vefsíðuna skemmtilega og jafnframt gagnlega er að setja upp skoðanakannanir. Með skoðanakönnunum er hægt að kanna hugi fólks til margs konar hluta tengdum félögum, áhugamálum, fyrirtækjum eða daglegu lífi. Skemmtileg skoðanakönnun getur líka örvað heimsóknir og þar með framgang vefsíðunnar á netinu.
Hvað á að spyrja um?
Allt milli himins og jarðar. Til dæmis geta fyrirtæki gert tímabundna könnun á afstöðu viðskiptavina til hinna ýmsu vörutegunda. Félög geta athugað áhuga á að fara í ferð eða hvar eigi að halda árshátíð. Einstaklingar geta spurt hvernig þeir eigi að far klæddir á næsta djamm.
Margir valkostir
Vefstjórinn stjórnar skoðanakönnunum með vefumsjónarkerfinu. Þegar hann hefur ákveðið um hvað á að spyrja setur hann upp valkosti. Valkostirnir geta verið tveir, þrír, fjórir eða fleiri eftir því um hvað er verið að spyrja. Því næst ákveður hann hversu lengi á að láta skoðanakönnunina lifa. T.d. hversu marga daga. Einnig er hægt að stilla hverjir hafi rétt til að taka þátt.
Atkvæðagreiðsla
Þegar gestir koma inn á síðuna er reynt að hafa skoðanakönnunina þannig að hún blasi við. Þeir sem vilja geta síðan smellt við þá skoðun sem hentar þeim. Þegar atkvæðagreiðslu er lokið koma niðurstöður fram. Á prufusíðu Emstra fyrir Drupal er hægt að skoða uppsetningu skoðanakannana.