Drupal vefumsjónarkerfi

Vefumsjón með Drupal

Submitted by saltstjori on F , 05/28/2009 - 22:37

Hvað er vefumsjón og vefumsjónarkerfi

Með vefumsjónarkerfi sem almennt á tölvumáli kallast CMS, eða „content management system“, er átt við stjórnkerfi sem fylgir vefsíðunni og gerir notandanum kleift að stjórna inntaki vefsíðunnar. Til þess að komast að stjórnkerfinu þarf vefstjórinn að skrá sig inn með lykilorði og aðgangsorði. Þegar hann er innskráður opnast nýtt leiðakerfi sem heimilar breytingar á inntaki vefsíðunnar.

Hverju er hægt að breyta?

Vefstjóri með full réttindi getur gert allar þær breytingar sem kerfið leyfir. Bæði á kerfinu sjálfu, uppsetningu og efni vefsíðunnar. T.d. getur hann stjórnað bloggi, spjallrásum, fréttum og innsetningu mynda ásamt því að stýra aðgangi. Vefstjórinn ákveður einnig hvernig aðgangur er settur upp. Hver fær aðgang að hverju og hver fær leyfi til að taka þátt spjallrásum og hver fær leyfi til að gera athugsemdir, svo dæmi séu nefnd. Vefstjóri getur líka sett inn efni eins og texta, myndir, hreyfimyndir, töflur, auglýsingar og allt annað efni sem er á vefsíðunni..

Umsjón með inntaki

Flestir sem ætla sér að sjá um vefsíðuna sjálfir vilja hafa frelsi til að breyta texta, skrifa fréttir, breyta myndum, setja inn atburði í atburðadagatal og stýra spjallþráðum. Með Drupal vefumsjónarkerfinu er allt þetta mjög auðvelt og krefst ekki annars en venjulegrar tölvukunnáttu.

Allir geta lært að hafa umsjón með Drupal vefsíðu

Flestir sem ætla sér að sjá um vefsíðuna sjálfir vilja hafa frelsi til að breyta texta, skrifa fréttir, breyta myndum, setja inn atburði í atburðadagatal og stýra spjallþráðum. Með Drupal vefumsjónarkerfinu er allt þetta mjög auðvelt og krefst ekki annars en venjulegrar tölvukunnáttu.

Auðvelt er að læra á og kenna starfsmönnum á vefumsjónarkerfið sem er sérlega notendavænt og öflugt. Aðgangskerfið sem skilgreinir hver hefur aðgang að hverju er einnig einfalt í uppsetningu og viðhaldi. Heimasíðugerð sem allir hafa gagn af.

Drupal er eitt útbeiddasta vefumjónarkerfi heims

Drupal er í mikilli sókn víða um heim og er orðið eitt útbreiddasta vefumsjónarkerfi heims enda sífellt fleiri fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sem taka það í notkun. Hér á landi má m.a. nefna Háskóla Íslands hi.is og vefsíðu stúdenta við H.Í. student.is. Þá nota margar stofnanir innan Háskóla Íslands Drupal vefumsjónarkerfi fyrir sínar vefsíður.