Skip to Content

Video og hreyfimyndir

Video

Með Drupal er auðvelt að setja inn video og upptökur úr símum, litlum myndavélum og margs konar hreyfimyndir. Þannig er hægt að auka fjölbreytni og margbreytileika vefsíðunnar og gera hana enn áhugaverðari.

Hvað eru hreyfimyndir?

Margir þekkja auglýsingar á vefsíðum þar sem hreyfing er notuð til að fanga athygli vefsíðugesta. Þetta höfum við öll séð á mbl.is og visi.is. Auglýsendur reyna að ná til okkar með því að skipta út myndum, texta og litum meðan við lesum fréttir. Allt er þetta gert með hreyfimyndum eða Flash.

Hvernig á að nota hreyfimyndir?

Þó að hreyfimyndir séu á stundum allt að því pirrandi geta þær verið afar gagnlegar. T.d. er hægt að setja upp Flash sem eingöngu skiptir um texta og getur verið upplýsandi. Einnig er t.d. hægt að nota Flash til að setja upp Gallerí fyrir myndir eða varning sem þú ætlar að kynna á netinu. Þetta má sjá á vefsíðu Sossu listmálara og einnig á vefsíðu Parket og Gólf.

Hverjir búa til hreyfimyndir?

Flestir grafískir hönnuðir kunna að búa til hreyfimyndir. Þú getur látið búa til hreyfimyndir sem passa í toppinn á vefsíunni, í dálkana til hliðar eða inn á miðjuna, allt eftir því hvað þú ætlar að segja. Hreyfimynd getur verið auglýsing eða kynning og á henni getur verið hnappur sem færir þig yfir á aðra síðu. Einnig geta Emstrur búið til hreyfimyndir fyrir vefsíður sem við setjum upp.

Láttu hlutina spila saman

Með því að nota hreyfimyndir getur þú útfært vefsíðuna með ýmsum hætti. Hreyfimyndir þurfa ekki að vera flóknar og geta verið bundnar við texta eða nokkrar myndir sem skiptast á. Notaðu þær sem hnapp ef þú þarft að kynna íþróttaviðburð í skóla, fund í stéttarfélagi, tónleka eða útilegu í ferðahópnum. Drupal og hreyfimyndir eiga vel saman.