Drupal er að ná fótfestu sem öflugasta "open source" vefumsjónarkerfið í dag
Þarftu vefsíðu sem hefur margs konar möguleika til samskipta á netinu?
Vefsíðu sem kynnir efni, óskar eftir viðbrögðum, gefur tækifæri, fer víða um netheima og skilar árangri. Þarftu vefsíðu sem þú stjórnar gegnum tölvuna þína? Þá er Drupal lausnin, enda er Drupal tvímælalaust öflugasta og útbreiddasta „Open Source“ vefumsjónarkerfið í dag. Milljónir notenda víðsvegar um heiminn hafa á síðustu árum ákveðið að taka upp þetta kraftmikla og notendavæna vefumsjónarkerfi. Og Drupal er í stöðugri endurnýjun.
Litlar og stórar vefsíður
Í dag leggur Drupal grunninn að litlum vefsíðum með fáar heimsóknir sem og risavöxnum vefsíðum með sem milljónir heimsækja á hverjum einasta degi. Drupal hentar öllum sem vilja hafa stjórn á efninu sem sett er inn á vefsíðuna. Þeim sem vilja vera eigin vefstjórar og skipta um efni sjálfir þegar þeim hentar án þess að greiða sérstakt mánaðargjald fyrir vefstjórnunarkerf. Emstrur vefsíðugerð setja upp vefsíður í Drupal vefumsjónarkerfi. Hafðu samband við Emstrur.
