Hagkvæm alhliða veflausn fyrir félög og félagasamtök
Ytri og innri vefur ásamt spjallþráðum og fréttum
Með Drupal vefsíðu frá Emstrum vefsíðugerð fær félagið meira en vefsíðu. Í raun er félagið að fá sinn eigin fjölmiðil sem gagnast til meiri háttar samskipta við félagsmenn. Eftir Drupal uppsetningu frá Emstrum er hægt að gera margt sem ekki var hægt áður. Þið getið haft ytri vef fyrir almenning og innri vef fyrir félagsmenn. Þið getið haf spjallþræði sem eingöngu félagsmenn hafa aðgang að og rætt um innri mál félagsins. Þið getið sett inn myndir frá hinum ýmsu atburðum og skemmtunum. Þið getið sett inn fréttir og myndir með fréttum. Þið getið líka sett upp atburði sem félagsmenn skrá sig í og þannig haldið utanum og áttað ykkur á því hver ætlar að mæta á atburði á ykkar vegum. Þið getið líka gert margt fleira.
Félagaskrá, póstlisti og fréttabréf
Setjið félagskránna inn á innri vef vefsíðunnar og látið vefsíðuna halda utanum meðlimi félagsins. Skilgreinið sjálf hvaða upplýsingar þið viljið setja í skránna. Notið félagaskránna til að halda utanum póstlista og sendið félagsmönnum fréttabréf og tilkynningar þegar eitthvað er í gangi. Notið vefsíðuna sem samskipta við félagsmenn og til að efla félagsheildina gegnum tölvupóst og fréttabréf. Með þessari uppsetningu getið þið náð til allra félagsmanna með mínútna fyrirvara.
Haldið kostnaði í lágmarki en notagildi í hámarki
Drupal vefumsjónarkerfið er frjáls hugbúnaður og er þess vegna gjaldfrjáls eftir að vefsíðan er komin út á netið. Með sérstökum samningi sem Emstrur hafa gert við Netsamskipti um hýsingu er hýsing á Drupal vef aðeins kr. 900 á mánuði. Annar rekstrarkostnaður ætti ekki að falla á vefinn ykkar. Notagildið hefur hins vegar margfaldast og þið ættuð ekki að vera neinum háð nema ykkar eigin vefstjóra.
