Í ferðaþjónustu skiptir máli að uppfæra upplýsingar
Ef þú ert í ferðaþjónustu er Drupal sérlega hagkvæmur og áhugaverður valkostur. Gildir einu hvort um er að ræða gistingu, ævintýraferðir, göngur, akstur eða hestaleigu. Það sem gerir Drupal sérlega aðlaðandi er vefumsjónarkerfið. Það hentar þeim sem oft þurfa að skipta um efni og myndir. Setja inn nýtt efni um spennandi hluti
Sýndu það sem er í gangi
Í ferðaþjónustu er ekki óalgengt að hlutirnir breytist. Ekki aðeins það sem þegar er í boði heldur líka margs konar þjónusta og möguleikar sem hægt er að bæta við. Ein skemmtileg hestaferð getur framkallað hugmynd sem vert er að setja upp sem viðbótar þjónustu. Við þær aðstæður er þægilegt að fara heim og skrifa textann, taka mynd úr síðustu ferð og setja nýtt tilboð inn á vefinn þegar þér hentar. Í vefumsjónarkerfi sem er þægilegt, notendavænt og án mánaðargjalds. Nefnilega frítt.


























































