Vefsíða er markaðssetningargræja ekki sýningargluggi
Þegar þú ákveður að setja upp vefsíðu, eða heimasíðu, þarftu að svara þeirri spurningu hvert hún á að fara. Þetta kanna að hljóma eins og spurning sem er út í hött þar sem hún á auðvitað að fara út á netið. Á netinu eru hins vegar milljónir heimasíða sem eru lítið skoðaðar og sjaldan heimsóttar. Ef heimasíðan þín á að fara beint í þann sí stækkandi hóp þarftu ekki að lesa lengra.
Ef vefsíðan á hins vegar að gegna því hlutverki sem góðri vefsíðu er ætlað, að vekja á þér athygli og selja eitthvað sem þú hefur fram að færa ættir þú að lesa meira.
Eins og í öllum viðskiptum þarf markmiðið að vera klárt og skýrt. Út frá markmiði og starfsemi þarf að velja lén sem hæfir. Á Íslandi er best að kaupa lén með endingunni .is til að vera augljóslega íslenskur jafnvel þó að þú ætlir að selja vöru eða þjónustu á alþjólegum markaði.
© 2010 EMSTRUR. Drupal theme by Kiwi Themes.
