Skip to Content

Mikilvægi opinna spjallþráða

Þrátt fyrir að margir telji að spjallþræðirnir eigi að vera lokaðir fyrir félagsmenn eingöngu vil ég vekja athygli á mikilvægi opinna spjallþráða hjá félögum.  T.d. áttum við í deilu við yfirvöld fjármála í landinu fyrir ári síðan.  Á opna spjallþræðinum gafst tækifæri á að koma sjónarmiðum okkar allra á frmfæri við almenning. Þannig gátum við milliliðalaust, allir félagsmenn, útskýrt okkar hlið á málinu.  Og vorum þannig ekki háð fréttamönnum eða öðrum til að túlka okkar sjónarmið.  Allir félagaar gátu síðan tekið þátt í umræðunni.