Skip to Content

Spjallþræðir geta verið öllum opnir

Öll félagasamtök sem setja upp vefsíðu í dag ættu að setja upp spjallþræði.  Þar geta félagsmenn rætt ýmiss málefni sem tilheyra félaginu eingöngu.  Þessi spjallþráður sem þú ert að lesa er þó opinn og allir sem koma inn á vefsíðuna geta séð þá umræðu sem hér er í gangi. 
Þetta getur verið hagkvæmt fyrir félagið þegar um er að ræða málefni sem félagið hefur hag af að kynna fyrir almenningi.  Einhverjir hagsmunir sem verið er að reka gagnvart öðrum og reynir félagið þannig að afla sér almenns stuðning.

Spjallþræðir eru uppbyggjandi

Ég sé að röksendir þínar fyrir spjallþráðum er réttar.  Við hjá Prófunarfélagi Almennings erum mjög ánægðir með spjallþráðinn okkar.  Við erum með opna umræðu sem margir taka þátt í og láta skoðanir sínar í ljós.  Allir eru þannig með í uppbyggingunn.  Við leyfum fólki að tjá sig opinberlega.

Málefnin skipta máli

Spjallþræðir félagsins gerðu okkur öllum mögulegt að koma skoðunum okkar til stjórnar milliliðalaust.  Ekkert pukur og leynifundir.  Við gengum beint að efninu á spjallþræðinum.  Þegar við vildum segja eitthvað verulega krassandi og kveða fast að orði fórum við yfir á lokaða spjallþráðinn.  Þar gátum við sagt hluti sem aðeins komu félagsmönnum við.

Spjallþræðir komu sér vel í síðustu kosningum

Það verður að segjast eins og er að í síðustu kosningum í félaginu var þægilegt að hafa spjallþræðina.  Þeir gáfu okkur almennum félögum tækifæri á að koma skoðunum okkar á framfæri.  Þvert ofaní það sem margir héldu var hlustað á okkur.   Við fengum málsvara gegnum spjallþræðina.